Viðskiptaþróun · Stjórnun · Stefnumótun

Árni Rúnar Birnuson

Ég hjálpa fyrirtækjum að vaxa með markvissri viðskiptaþróun, sterkum viðskiptasamböndum og skýrri stefnu — með tækniþekkingu sem stuðning þar sem hún skiptir máli.

Árni Rúnar Birnuson, viðskiptaþróunarstjóri

Um mig

Ég er reyndur viðskiptastjóri, ráðgjafi og stjórnandi með yfir 15 ára reynslu af viðskiptaþróun, stefnumótun og rekstri. Sterk viðskiptasambönd verða ekki til af tilviljun. Ég trúi á að hlusta, skilja þarfirnar og vera til staðar þegar á reynir — þannig skapast traust sem oft leiðir til langvarandi viðskiptasambands.

„Sterk viðskiptasambönd verða ekki til af tilviljun — þau byggjast á trausti, hlustun og langtímahugsun."

Á ferlinum hef ég starfað bæði hjá þjónustufyrirtækjum og í stærri rekstrarumhverfum, meðal annars við þjónustustjórnun, stefnumótun, umbætur, ráðgjöf og þróun þjónustuframboðs. Í dag starfa ég við viðskiptaþróun hjá Tölvuþjónustunni þar sem ég vinn með fyrirtækjum að því að hámarka virði rekstrarins og styrkja viðskiptasambönd til framtíðar.

Menntun mín sameinar viðskipti og tækniþekkingu, sem gefur mér breiðan skilning á því hvernig fyrirtæki vaxa. Ég lauk BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst og hef einnig sérhæft mig í net- og kerfisstjórnun frá NTV.

Árangur í tölum

20+ Ár í upplýsingatækni
10+ Ár í rekstri, þjónustu og innviðum
100+ Verkefni og ráðgjafaverkefni
10+ Ár í viðskiptaþróun

Sérsvið

Viðskiptaþróun

Uppbygging og þróun þjónustuframboðs, sölutækifæri og ný viðskiptasambönd sem skila raunverulegum vexti.

Stefnumótun og stjórnun

Stefnumótun, umbótavinna og þátttaka í framkvæmdastjórn sem tryggir að rekstur og markmið fyrirtækisins fari saman.

Ráðgjöf í rekstri

Ráðgjöf um hvernig fyrirtæki nýta rekstur, þjónustu og innviði betur til að styðja við viðskiptalegan árangur.

Tækni sem stuðningur

Breið þekking á upplýsingatækni — MSP þjónustu, Microsoft Cloud, öryggismálum og gervigreind — nýtt til að styrkja viðskiptaákvarðanir, ekki bara reksturinn sjálfan.

Ferill

Tölvuþjónustan 2025-

Viðskiptaþróunarstjóri og í framkvæmdastjórn

Þróun þjónustuframboðs, ráðgjöf, söluverkefni, viðskiptatengsl og stefnumótun í upplýsingatækni.

Nova 2024-2025

Head of IT Operations og í tæknistjórn

Leiddi þróun, stöðugleika og umbætur í innri upplýsingatækni, þjónustu og rekstri.

Þekking 2022-2024

Sviðsstjóri viðskiptaþróunar og í framkvæmdastjórn

Þróun þjónustuframboðs, ráðgjöf, söluverkefni, viðskiptatengsl og stefnumótun í upplýsingatækni.

Þekking 2014-2022

Viðskiptastjóri

Þróun þjónustuframboðs, ráðgjöf, söluverkefni, viðskiptatengsl og stefnumótun í upplýsingatækni.

Menntun

Háskólinn á Bifröst

BS í Viðskiptafræði

2019–2024

NTV

Kerfistjórn

2012–2013

NTV

Sölu og markaðsnám

2011

Mín nálgun

Ég hef trú á að bestu lausnirnar verði til þegar fólk, viðskipti og tækni vinna saman. Áhersla mín hefur alltaf verið á að skilja markmið fyrirtækja, byggja upp sterk tengsl og finna leiðir til að skapa verðmæti og ný tækifæri. Traust, góð þjónusta og langtímahugsun eru grunnurinn að árangursríku samstarfi, óháð því hvort verkefnið snýr að upplýsingatækni, rekstri eða viðskiptaþróun. Ég legg áherslu á að tengja saman fólk, ferla og tækni til að skapa raunverulegt virði fyrir fyrirtæki.

Persónulegt

Búsettur í Hafnarfirði, fjölskyldumaður og mikill íþróttaáhugamaður.

Stuðningsmaður Rauðu djöflana, Fimleikafélagsins og Ljónanna.

Áhugamaður um góða sjávarrétti, tækni og nýjar leiðir til að tengja saman fólk, ferla og tæknilausnir.

Hafa samband

Er fyrirtækið þitt að glíma við tækniskuld, óljósa IT stefnu eða vill einfaldlega tryggja betra rekstraröryggi? Hafðu samband — stutt spjall kostar ekkert.

[email protected]

LinkedIn

arnirunarjr.me